Að nota farsíma erlendis

Gagnanotkun erlendis

Þegar gagnamagn er notað erlendis getur því fylgt töluverður kostnaður. Mælum við með að slökkt sé á gagnanotkun farsímans áður en landið er yfirgefið. Ef þörf er á að komast á netið á meðan dvalið er í útlöndum eru flest hótel með frítt þráðlaust net og einnig er hægt að kaupa fyrirframgreidd gagnakort frá þjónustuveitum þess lands sem dvalið er í.

Kostnaður erlendis

Á farsímasíðunni má sjá hvað kostar að nota símann erlendis. Líkt og heima kostar að hringja símtöl, nota netið og senda SMS. Þegar dvalið er í útlöndum kostar einnig að móttaka símtöl en það kostar ekkert að móttaka SMS. Ef fólkið heima þarf að hafa samband er því kjörið að það sendi SMS.

Getur ekki hringt

Ef farsíminn virkar ekki þegar komið er til útlanda getur verið að þú hafir tengst við kerfi sem er ekki með reikisamning við Hringiðuna. Hægt er þá að prófa að velja handvirkt annað kerfi.

Á Android er það gert með að velja Tethering & Networks > Mobile Networks > Network Operators

Á iPhone er það gert með að velja Settings > Carrier