Komdu í viðskipti

Vefpóstur

Microsoft 365

525 2400

Þráðlaus net

Staðsetning á netbeini

Eftirfarandi er gott að hafa í huga þegar router er staðsettur.

  • Miðsvæðis og ofan á borði eða skáp.
  • Hátt uppi ef hægt er, ekki niðri við gólf
  • Helst ekki upp við burðarveggi
  • Ekki nálægt örbylgjuofni

2,4Ghz eða 5Ghz

Í routerum eru oftast tvö þráðlaus net 2,4Ghz og 5Ghz sem er hraðvirkara enn dregur ekki eins langt og SuperWifi 5Ghz.

Hvernig sé ég muninn?
Á routerum frá okkur þá ættir þú að sjá þessi mismunandi þráðlaus net.

  • Hringidan25176
  • Hringidan25176_5G

En hvoru áttu að tengjast við?

  • 2,4Ghz er með ágætan hraða og lengri drægni hentar því vel fyrir farsíma og þau tæki sem þú ferð með um allt hús. Ef þú ert reglulega í öðru herbergi, annarri hæð er þetta það sem er viðeigandi.
  • 5Ghz styður meiri hraða en með dregur stittra, ef þú ert langt frá routernum geturðu fengið verri hraða með 5Ghz heldur en 2,4Ghz.

Þráðlausar rásir

Þráðlausu neti má skipta niður í mismunandi rásir. Hver router vinnur á sinni rás, ef margir eru á sömu rás getur það haft neikvæð áhrif á gæði þráðlaus nets. Hægt er að setja handvirkt hvaða rás routerinn notar.

Ýmis forrit eru til sem hægt er að nota til að skoða hvaða rásir eru í notkun og velja viðeigandi rás í framhaldinu.

Wifi Analyzer fyrir Android
Wifi Analyzer fyrir Windows

Burðarveggir og járn

Járabinding hefur mjög slæm áhrif á þráðlaus merki. Hvort sem það er að merki sé að berast í gegnum járnabundin vegg eða ef router er staðsettur upp við járnabundin vegg.

Mikill munur getur verið á gæðum þráðlaus nets ef router er alveg upp við vegg eða 30 til 50 sentimetra frá honum.

[cs_gb id=9543]
close-link