LJósleiðari

Hringiðan rekur ljósleiðarahring um Reykjavík og inn á hann tengjum við fjölmörg fyrirtæki. Með því að reka eigin ljósleiðarahring getur Hringiðan boðið viðskiptavinum sínum örugga þjónustu og góð verð.

Utan ljósleiðarahringsins okkar er Hringiðan í samstarfi við fjölda aðila og ætti því ávallt að geta tengt upp þá sem eftir því óska.

Ljósnet

Ljósnetið er tekið yfir núverandi símalínur og getur því fyrir suma hentað betur að taka inn slíka tengingu. Umfang er minna og kostnaður að sama skapi lægri. Ljósnet er í boði um mestallt land og fyrir þá sem eiga ekki kost á því er ADSL ávallt möguleiki.

Tengingin býður upp á töluverðan hraða og með nýjustu tækni lágan svartíma.

Einkanet

Mörg fyrirtæki eru með aðstöðu á fleiri en einum stað og allir staðirnir þurfa að tala saman. Fyrir þá bjóðum við upp á útibúatengingar eða einkanet svo að allar skrifstofurnar séu á eina sama netinu.

Sértækari uppsetningar

Við vitum að þarfir fyrirtækja eru mismunandi, á meðan sumar þurfa einfalda nettengingu þá þurfa sumir eitthvað allt annað. Hafðu samband við okkur ef þú ert einn af þeim og við sjáum hvort við getum ekki fundið góða lausn fyrir þig. Dæmi um sértæka uppsetningu væri sérgátt til útlanda.