Verðbreytingar 1.janúar 2023.
Hringiðan hefur í lengstu lög keppst við að hækka ekki verð á þjónustum sínum allt árið 2022.
Míla og Ljósleiðarinn hafa tilkynnt um hækkanir á línugjöldum og aðgangsgjöldum frá og með 1. Janúar 2023. Hringiðan innheimtir aðgangsgjöld Mílu og þarf því að hækka línugjöld og aðgangsgjöld. Nýtt verð frá og með 1.jan 2023 verður 3.690kr m.vsk.
Við hvetjum viðskiptavini Hringiðunnar til að hafa samband og fá ráðgjöf um hvort að viðkomandi sé í þeim áskriftarleiðum og þjónustu sem henta þeim best. Hægt er að hafa samband í gegnum tölvupóst hringidan@hringidan.is eða hringja í 525 2400.