Nú stefnir fjöldin allur af Íslendingum til Rússlands til að fylgjast með landsliðinu í Heimsmeistaramótinu í fótbolta.
Vert er að benda á tilkynningu frá Póst- og fjarskiptastofnun um að reikireglur Evrópusambandsins gilda ekki í Rússlandi. Sjálfvirkar lokanir við 50 evrur taka ekki gildi og engin hámörk eru á verðum.
Tilkynning PFS.
Hér fyrir neðan má sjá verð í farsímareiki í Rússlandi fyrir viðskiptavini Hringiðunnar sem komnir eru á ný SIM kort sem við höfum verið að skipta út.
Fyrir þá sem eru enn á eldri kortum eru verðin töluvert hærri og hvetjum við fólk eindregið gegn því að nota þau kort. Ef þörf er á að nota símann mikið, þar með talið gagnamagn í Rússlandi hvetjum við viðskiptavini okkar til að fá sér Rússneskt frelsiskort og notast frekar við það á meðan dvalið er úti.
Þjónusta | Verð á nýjum SIM kortum | Verð á eldri SIM kortum |
---|---|---|
Hringt heim (upphafsgjald) | 0 kr. | 0 kr. |
Hringt heim (mínútuverð) | 99 kr. | 650 kr. |
Símtalið móttekið (mínútuverð) | 99 kr. | 90 kr. |
SMS sent heim | 49 kr. | 90 kr. |
Gagnanotkun | 99 kr./MB | 2.900 kr./MB |