Microsoft hefur leyft öllum þeim sem eiga gild Windows 7 og Windows 8 leyfi að uppfæra frítt í Windows 10. Því tilboði lýkur næstkomandi föstudag en eftir það mun leyfa kosta um 20-30 þúsund.
Hvetjum við alla þá sem ekki hafa uppfært nú þegar að nýta sér tilboðið enda er Windows 7 nú orðið sjö ára gamalt og því komið vel til ára sinna.
Frekari upplýsingarnar um uppfærsluna má finna á heimasíðu Microsoft.
https://www.microsoft.com/is-is/windows/windows-10-upgrade