Yfir 80% tenginga 50Mbit eða hraðari

Hringiðan Blogg

Skýrsla Póst- og Fjarskiptastofnunar vegna 2015 kom út í síðustu viku. Er það margt áhugavert að finna og er hægt að lesa þar úr hvernig neyslumynstur okkar breytist. Helstu niðurstöður eru til dæmis að ljósleiðaratengingum fjölgar um 14,4% á milli ára og eru nú 33.962 talsins en 99,2% allra nettenginga eru nú ljósleiðari eða xDSL. Áberandi tókum við eftir því hér hjá Hringiðunni með ljósleiðaravæðingu Eyja- og Miklaholtshrepp en Hringiðan hefur rekið þráðlaust kerfi á sunnanverðu Snæfellsnesi í tíu ár.

Gagnamagn í farsíma rúmlega tvöfaldaðist á milli ára sem kemur engum á óvart en nú er 3G og 4G í boði víðsvegar um landið og gagnamagn verður ávallt ódýrara.

Skemmtileg staðreynd er að 82,4% tenginga eiga nú kost á 50Mbit á sekúndu í niðurhal eða meira. Framboð háhraðatenginga hefur aldrei verið meira og finnst það helst í dreifbýli þar sem það verður æ sýnilegra að lykillinn að þróun samfélaga eru meðal annars góðar og stöðugar nettengingar. Sveitarfélög hafa ljósleiðaravætt á eigin vegum, sum með styrk frá ríkinu og Míla hefur hafið í auknum mæli að bjóða upp á Ljósnet á landsbyggðinni.

Það er eflaust marks um breytta tíma að í fyrsta sinn er enginn virkur almenningsími á árinu 2015 en þeim fækkar frá fyrra ári, 2014 voru fjögur stykki á landinu.

Fyrir áhugasama má finna skýrsluna alla með að ýta hér.